Venus
Venus hefur um það bil sama þvermál, massa og þéttleika og jörðin. Venus er hulinn samfelldri gulleitri skýjaþykkni en droparnir úr henni eru úr brennisteinssýru. Lofthjúpurinn er úr koltvíoxíði og er baðaður rauðgulum ljóma. Hitinn getur farið upp í 480°C. Á yfirborði pláneturnar eru gljúfur, gígar og miklar sléttur en ekkert vatn hefur fundist. Venus snýst í kringum möndul sinn á 243 jarðardögum en í öfuga átt en jörðin.