Merkúríus
Merkúríus er reikistjarnan sem er næst sólu í sólkerfinu okkar. Eitt ár á Merkúríus er 88 jarðardagar og hann snýst í kringum möndul sinn á 59 jarðardögum. Plánetan er alsett gígum og það eru miklar sléttur sem hafa líklega myndast þegar hraun rann fá eldfjöllum fyrir milljörðum ára. Htastigið getur orðið allt frá -170°C á næturhliðinni og upp í 400°C á daghliðinni og er þess vegna ein af köldustu og heitustu reikistjörnunum í sólkerfinu.