Mars
Mars hefur tvö tungl sem heita Fóbus og Deímos. Yfirborðið er grýtt og alsett gígum og gashjúpurinn er að mestu úr koltvíoxíði. Jarðvegurinn er mjög líkur og á jörðinni nema að í jarðveginum á Mars er húð úr járnoxíði sem við þekkjum sem ryð. Engar lífverur hafa samt fundist í jarðveginum á Mars. Ekkert fljótandi vatn virðist vera á Mars en það er frosið vatn í jökli í kringu póla plánetunnar. Það eru óvirk eldfjöll á Mars og eitt þeira er þrisvar sinnum hærra en Everestfjall.